JN

Maleisiska flogfarið møguliga funnið

...

2014-04-05 18:47 Author image
Jóanis Nielsen
placeholder

 Kinesisk skip, sum hava leitað eftir horvna maleisiska flogfarinum, halda seg nú hava funnið horvna flogfarið, tað skrivar MBL.is - sí niðanfyri. Mailaisiska flogfarið hvarv 8. mars, umborð vóru 239 fólk.

Er flugritinn fundinn?

Er flugriti vélarinnar fundinn? Skuggi af herflugvél yfir leitarsvæðinu á ...

Er flugriti vélarinnar fundinn? Skuggi af herflugvél yfir leitarsvæðinu á Indlandshafi. AFP

Kínverskt skip, sem er við leit að malasísku farþegaþotunni í Indlandshafi, hefur nú numið merki á tíðninni 37,5 kHz/sek sem er stöðluð tíðni sem flugritar flugvéla senda frá sér. CNN segir frá þessu og vitnar í kínversku fréttastofuna Xinhua. ?????etta er sama tíðnin,??? staðfestir Anish Patel, forstjóri fyrirtækisins Dukane Seacom sem framleiðir búnað sem þennan.

Í frétt kínversku fréttastofunnar er varað við því að enn sé ekki staðfest að um flugrita malasísku þotunnar sé að ræða. Merkið nam skipið Haixun 01 í dag.

Allt kapp er nú lagt á að finna flugrita vélarinnar áður en það verður um seinan. Rafhlöður flugritanna endast í mánuð. Nú eru fjórar vikur frá því að vélin hvarf og því líklegt að rafhlöðurnar séu orðnar tómar eða að tæmast. 

Malasísk stjórnvöld ítrekuðu í dag að þau ætluðu ekki að gefast upp við leitina að vélinni. ??au ítrekuðu einnig að þau hefðu ekkert með hvarf vélarinnar að gera, líkt og fram kemur í háværum samsæriskenningar, m.a. frá leiðtoga stjórnarandstöðunnar í Malasíu.  ???Við stóðum ekki að baki hvarfinu á vélinni,??? sagði samgönguráðherra Malasíu á blaðamannafundi í morgun.

Hér má lesa frekar um flugrita.

Fréttin verður uppfærð.

Herskip við leit í Indlandshafi.

Herskip við leit í Indlandshafi. AFP

Vinarliga broyt tínar kennifíla - og privatlívsstillingar fyri at síggja hetta innihald

placeholder