
Nógvur svartkjaftur, sum er fiskaður í føroyskum sjógvi er seinastu dagarnar landaður á Eysturlandinum í Íslandi.
Sildarvinnslan hevur teir seinastu dagarnar tikið ímóti 7.100 tonsum í Neskaupstaði og Seyðisfirði, harafturat hevur Eskja í Eskifirði og Lodnuvinnslan á Fáskrúðsfirði eisini tikið ímóti svartkjafti.
SVN.is skrivar:
7.100 tonn af kolmunna til Síldarvinnslunnar
Síðustu dagana hafa 7.100 tonn af kolmunna borist til fiskimjölsverksmiðja Síldarvinnslunnar í Neskaupstað og á Seyðisfirði. Kolmunninn fæst í færeysku lögsögunni og hefur veiðin þar verið nokkuð góð.
Bjarni ??lafsson AK kom með 1.800 tonn til Neskaupstaðar sl. fimmtudag og upplýsti Gísli Runólfsson skipstjóri að aflinn hefði hengist í fjórum holum en venjulega var togað í 5-12 tíma í hvert sinn. Á föstudag kom Börkur NK til Seyðisfjarðar með 2.200 tonn sem fengust í átta holum. Að sögn Háfdans Hálfdanarasonar skipstjóra var töluvert af fiski að sjá á miðunum en hann var ekki mjög þéttur þannig að veiðin var ekki með skarpasta móti þótt engin ástæða væri til að kvarta. Beitir NK kom síðan til Neskaupstaðar í gærkvöldi með 3.100 tonn. Tómas Kárason skipstjóri tók undir með Hálfdani og sagði að vart yrði við töluverðan fisk á svæðinu. ???Við vorum að veiða austur af Akrabergi sem er syðsti oddi Færeyja og veiðin var nokkuð góð. Við fengum að jafnaði hátt í 400 tonn í holi en við toguðum allt upp í 20 tíma. Slæmt veður um þarsíðustu helgi truflaði veiðiferðina nokkuð en við notuðum bræluna til að lagfæra veiðarfærin. ??arna gekk ofsaveður yfir og við viðgerðarvinnuna stóðum við í færeyskum snjóbyl. Slíkt veður er ekki algengt þarna,??? sagði Tómas.
Vinarliga broyt tínar kennifíla - og privatlívsstillingar fyri at síggja hetta innihald